Innlent

Einn handtekinn

Einn maður var handtekinn í fyrrakvöld vegna húsbrots í Fossvogi í síðustu viku. Hann gaf sig ekki fram til skýrslutöku og brá lögreglan þá á það ráð að handtaka manninn. Hann gisti í fangageymslu lögreglunnar yfir nótt. Rannsókn málsins stendur enn. Samkvæmt lögreglu miðar henni vel þó ekki sé búið að yfirheyra alla sem komu við sögu. Ekki er vitað hvað árásarmönnunum gekk til en þeir skutu með haglabyssu á útihurð hússins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×