Viðskipti innlent

Girnast erlend flugfélög

Flugleiðir fyrirhuga að fjárfesta í flug- og ferðaþjónustu annars staðar á Norðurlöndum og hafa augastað á flugfélögunum Maersk og Sterling, ef þeim tekst að vinna sig út úr miklum rekstrarerfiðleikum. Þetta segir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, í viðtali við danska viðskiptablaðið Börsen. Flugleiðir hafa þegar lýst áhuga á að kaupa fraktfyrirtækið Stair af Maersk-flugfélaginu en ekki haft erindi sem erfiði. Börsen fjallar um velgengi Flugleiða nú þegar flest norræn flugfélög hafa átt í verulegum rekstrarerfiðleikum. Nú hafi Flugleiðir gefið út að tímabært sé að stækka við sig erlendis þar sem innnanlandsmarkaðurinn sé mettaður. Fjárfestingar félagsins verði þó í ferða- og flugþjónustu þar sem félagið þekki best til. Lýst er kaupum félagsins á tíu prósentum í Easy Jet í október og áformum um að kaupa enn stærrri hlut. Hvorki Sterling né Maersk-flugfélagið hafa hins vegar lýst áhuga á að selja. Sigurður Helgason segir Sterling mun betri fjárfestingu enda meira ögrandi og betur rekið. Hann segir að laun flugmanna og áhafna hjá Maersk séu hins vegar þyrnir í augum sem geri slík kaup minna áhugaverð. Blaðið hrósar Flugleiðum fyrir að vera eitt af fáum flugfélögum sem skilað hafa góðum hagnaði eftir 11. september 2001 og segir útlitið gott hjá félaginu, þrátt fyrir slæm starfsskilyrði greinarinnar sökum verðstríðs og hás olíuverðs. Sigurður segir að leyndarmálið bak við velgengni flugfélagsins sé að eftir hryðjuverkaárasina í Bandaríkjunum hafi það lært að vera sveigjanlegt og geti nú bæði vaxið og skorið niður hratt. Sigurður segir að áframhaldandi velgengni verði tryggð með enn frekari stækkun sem geri kleift að lækka kostnað enn frekar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×