Erlent

13 írakskir lögreglumenn drepnir

Skæruliðar felldu þrettán írakska lögreglumenn og særðu tvo í geysiharðri árás sem þeir gerðu á lögreglustöð í borginni Tíkrit í Írak í morgun. Margskonar vopnum var beitt og reyndu lögreglumennirnir að verjast en ekki fer sögum af mannfalli í röðum skæruliða. Írakskir lögreglumenn, sem hlotið hafa þjálfun hjá bandaríska hernum, virðast vera áhugaverðustu skotmörk skæruliða nú í aðdraganda kosninganna í landinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×