Innlent

Ákærður fyrir manndrápstilraun

Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, sem hjó til annars með öxi á veitingastað í Hafnarfirði fyrir skömmu, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn, sem mun sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómur verður kveðinn upp, hefur áður verið dæmdur fyrir ofbeldi og fíkniefnabrot. Hann fékk þriggja mánaða skilorðsbundin dóm í fyrra og braut því skilorðið með árásinni. Þá var hann dæmdur fyrir átta árum fyrir að hafa ráðist inn í söluturn og barið afgreiðslustúlku með hamri. Fyrir það hlaut hann átján mánaða fangelsisdóm. Maðurinn neitar tilraun til manndráps.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×