Viðskipti innlent

Tap upp á 66 milljónir króna

Rekstrartap á Íslenska sjónvarpsfélaginu, sem rekur Skjá einn, var rúmlega 66 milljónir í fyrra samkvæmt ársreikningi. Fyrirtækið hafði tæpar fimm hundruð milljónir króna í auglýsingatekjur á árinu en reksturinn kostaði um 570 milljónir. Skuldir nema tæpum hálfum milljarði. Við lok ársins skuldaði fyrirtækið meðal annars Landsbankanum 250 milljónir og Landssímanum 14 milljónir króna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×