Gruggug lækning 30. júní 2004 00:01
Jæja, þá eru jólin hjá mér. Ný plata frá uppáhalds sveitinni minni The Cure. En þá lendi ég í smá vandræðum. Hvernig á ég eiginlega að reyna sannfæra ykkur um að þetta sé góð plata þannig að þið takið eitthvað mark á mér? Þetta er ekki týpískt plata frá sveitinni. Eins og einhverjir muna kannski þá tók upptökustjórinn Ross Robinson, sem hefur unnið með Korn og At the Drive-in, hljómsveitina upp á sína arma og hann leyfir sér alveg að pota svolítið í hana. Tekur hárétta ákvörðun og skilar gruggugri lækningu en við höfum kynnst áður. Allt mjög lifandi og ópússað, bara eins og sveitin hljómar á tónleikum. Það er söngurinn líka. Guð hjálpi þeim sem hefur fundist Robert frekar tæpur á því í gegnum tíðina. Þetta er ný nálgun að gamalli hlið sveitarinnar. Löngu intró-in og gítarplokkmelódíurnar að mestu kvödd, meira keyrsla og gítarbrjálæði. Ef ég ætti þó að líkja þessu við eitthvað sem The Cure hefur gert áður, þá væri það lög á borð við Give Me It, The Kiss, Fight, Cut og Watching Me Fall af síðustu plötu. Helsti munurinn er bara að flestar lagasmíðarnar hér eru miklu sterkari en öll þessi lög. Lagið "Labyrinth" er einfaldlega með því betra sem The Cure hefur gert frá upphafi. Svo er auðvitað passað upp á að hafa skothelda slagara fyrir útvarpið. Þeir ættu að verða "Before Three", "The End of the World", "Taking Off" og "(I Don't Know What's Going) On". Þetta er reiða hliðin af The Cure sem hefur fengið að fljóta með í nokkrum lögum áður, en sem hefur aldrei verið splæst á heila plötu áður. Textar Robert Smith eru mér þó örlítið áhyggjuefni. Ég hef alla tíð dáðst að ljóðrænu hans, en á síðustu plötu þynntust textasmíðarnar örlítið, og þær skána ekki hér. Ég veit að hann getur betur. Simon Gallup bassaleikari á eiginlega þessa plötu, það er langt síðan hann hefur fengið að njóta sín svona vel. Hann spilar lykilhlutverk nánast í hverju einasta lagi. Þetta er hugrökk plata og tilraunir Ross Robinson ganga upp. Besta og heilsteyptasta plata The Cure frá því að Disintigration kom út árið 1989, úff, það eru fimmtán ár. Birgir Örn Steinarsson The Cure: The Cure
Mest lesið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Khalid kemur út úr skápnum Lífið Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Lífið Fleiri fréttir Stúlkan með nálina: Hver gerir svona kvikmynd? Ástkona njósnarans skildi eftir sig sjóðheit bréf Efni sem veldur uppköstum, yfirliðum og eilífri æsku The Bikeriders: Hvenær komum við í flugeldaverksmiðjuna!? Kælt niður í byrjun og svo búmm! DIMMA var flott en einhæf Sjá meira