Innlent

Ráðherrar Norðurlandanna funda

Forsætisráðherrar Norðurlandanna munu hittast á fundi í Sveinbjarnargerði við Eyjafjörð næstkomandi sunnudag, 8. ágúst, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Á fundinum verður fjallað um norræn málefni, Evrópumál og önnur alþjóðamál. Að fundi ráðherranna loknum verður haldinn stuttur blaðamannafundur þar sem ráðherrarnir sitja fyrir svörum. Á mánudeginum fara ráðherrarnir svo í skoðunarferð til Goðafoss og Mývatns. Vegna veikindaforfalla Davíðs Oddssonar forsætisráðherra verður Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra gestgjafi af Íslands hálfu á fundinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×