Viðskipti innlent

41 milljónar hagnaður

Opin kerfi group hagnaðist um 41 milljón á öðrum árfsjórðungi í ár. Afkoman er í samræmi við væntingar greiningardeilda þó tæplega 50 milljón króna afskriftir á eign í öðrum félögum sé hærri en þær gerðu ráð fyrir. Á sama tíma í fyrra var tap á rekstrinum 22,3 milljónir króna. Síðan þá hafa tekjur vaxið um 47 %. Frosti Bergsson, starfandi stjórnarformaður félagsins, segir að á síðasta ársfjórðungi hafi 65 % teknanna komið frá útlöndum. Opin kerfi reka fyrirtæki á Íslandi, Svíþjóð og í Danmörku. Hjá félaginu starfa um sex hundruð manns.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×