Erlent

Með tíu gísla í haldi

Íslamskur hópur sem kallar sig „Íslamskur her Íraks - herdeild vesturhéraðanna“ fullyrðir að hann hafi tíu gísla á valdi sínu. Sjónvarpsstöðin Al Jazeera sýndi myndband frá hópnum í dag en hópurinn segist hafa tvær indónesískar konur, tvo Líbani og sex Íraka í haldi. Á myndbandinu sjást fjórir gíslanna. Þeir eru allir karlkyns og beina mannræningjarnir skotvopnum að þeim. Hópurinn hefur enn ekki sett fram neinar kröfur í skiptum fyrir gíslana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×