Fyrirlestraröð Umhverfisstofnunar 8. september 2004 00:01
Hér starfa sérfræðingar á öllum sviðum og okkur langaði til þess að miðla þekkingu þeirra til almennings," segir Hrefna Guðmundsdóttir, fræðslu- og upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar. Á þriðjudag í næstu viku hefst fyrirlestraröð stofnunarinnar. Sérfræðingar stofnunarinnar á ýmsum sviðum taka þar fyrir ýmis málefni sem tengjast sviði Umhverfisstofnunar, á sviði matvæla, efnavara, dýraverndunarmála, mengunarmála og náttúruverndar. "Fyrirlestrarnir verða á léttu og aðgengilegu formi," segir Hrefna. "Umhverfisstofnun er tveggja ára gömul stofnun, hér er mikil þekking til staðar sem við viljum gefa almenningi kost á að njóta." Sigurður Örn Guðleifsson, lögfræðingur Umhverfisstofnunar, og Ólafur Árnason, sérfræðingur á framkvæmda- og eftirlitssviði Umhverfisstofnunar, ríða á vaðið á þriðjudaginn með erindi sem þeir nefna "Akstur utan vega". Fyrirlestrarnir hefjast klukkan 15. Aðgangur er öllum ókeypis. Fyrirlestrarnir fara fram í húsakynnum Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24. Fyrirlestrarnir verða aðra hvora viku og lýkur röðinni 7. desember. Dagskrá haustið 2004 14.sept.: Akstur utan vega 28. sept.: Samsetning og öryggi skólamáltíða 5. okt.: Varnir gegn mengun sjávar og stranda 26. okt.: Meindýravarnir 9. nóv.: Vefgátt fyrir landupplýsingar 23.nóv.: Erfðabreytt matvæli 7. des.: Svanurinn - leið til betri heilsu
Nám Mest lesið Myndaveisla frá stjörnufans og gleðinni í Víðidal Lífið Brat Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Bíó og sjónvarp „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Högni og Snæfríður eignuðust stúlku Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Biden móment hjá Nick Cave í Eldborg Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira