Erlent

Blóðbaðið heldur áfram

Að minnsta kosti fjórtán eru látnir og tuttugu eru særðir eftir tvær sjálfmorðsárásir í Írak í dag. Ellefu hinna látnu voru sérsveitarmenn innan íröksku lögreglunnar sem létust þegar maður sprengdi sig í loft upp við eftirlitsstöð í borginni Ramadí. Þrír hinna særðu eru óbreyttir borgarar. Seinni árásin átti sér stað nærri Bagdad þegar árásarmaðurinn ók bifreið sinni upp að bílalest írakska hersins og sprengdi hana svo í loft upp. Þrír hermenn létust og sex særðust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×