Lífið

Gæðavottun gott framtak en dugar ekki til

Lóa Aldísardóttir
Lóa Aldísardóttir

"Það er allt ljómandi að frétta," segir Lóa Aldísardóttir, þáttastjórnandi á útvarpsrásinni Talstöðinni. "Í vinnunni höfum við Hallgrímur Thorsteinsson ekki síst verið að tala um kynbundinn launamun. Við höfum verið að taka það málefni föstum tökum í þættinum okkar Allt og sumt á morgnana milli níu og tólf. Við höfum fengið ýmsa til að tjá sig um þennan launamun og það óréttlæti sem í honum fellst," segir Lóa.

Spurð um hvað henni sýnist í þeim efnum svarar hún að hún viti ekki til þess að nokkur maður sé á því að kynbundinn launamunur sé eitthvað sem eigi að líða. Lóa veltir fyrir sér hugmyndum Árna Magnússonar félagsmálaráðherra, sem hyggst koma á gæðavottun um jöfn laun í því skyni að hvetja atvinnurekendur til að útrýma launamun kynjanna: "Mér sýnist margir á þeirri skoðun að þessi hugmynd um gæðavottunarkerfi sé vissulega gott skref og fínt framtak en muni ekki nægja til að gera skurk í þessum málum."

Lóa segist svo sannarlega vona að menn gleymi sér ekki í því að jafna launamun kynjanna nú þegar kvennafrídagurinn sé að baki. En Lóa þarf að huga að fleiru á næstunni. Brátt verður útvarpsþættinum þeirra Hallgríms sjónvarpað: "Það verður eftir tvær vikur. Eins og er eigum við að byrja mánudaginn 7. nóvember hér á annarri hæðinni," segir Lóa, sem flytur sig þá á milli hæða í húsi 365 miðla í Skaftahlíðinni.

En mun hún sakna útvarpsins? "Ég veit það ekki. Já, já, en ég vissi svo sem alltaf að þetta stæði til og að útvarpið væri millibilsástand. Ég hef aldrei unnið í sjónvarpi og hlakka til að takast á við verkefnið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×