Sport

Ætlar að eyða í janúar

Alex Ferguson segir breiddina vanta í núverandi leikmannahóp Man. Utd.
Alex Ferguson segir breiddina vanta í núverandi leikmannahóp Man. Utd.

Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, staðfesti við enska fjölmiðla í gær að hann hyggðist styrkja leikmannahóp sinn verulega þegar leikmannaglugginn opnast á ný í janúar.

Ferguson og lærisveinar hans höfðu ekki verið upp á sitt besta áður en þeir bundu enda á sigurgöngu Chelsea um síðustu helgi og vilja stuðningsmenn liðsins meina að þunnum leikmannahópi sé um að kenna. Og nú virðist sem að Ferguson sé sammála.

"Það er mikil geta til staðar í hópnum en við höfum verið að treysta of mikið á ungu leikmennina í fjarveru reynslubolta á við Keane, Neville og Heinze. Ég ætla að styrkja og auka breiddina í hópnum í janúar," sagði Ferguson í gær en bætti því við að erfitt væri að fá góða leikmenn sem yrðu löglegir í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×