Lífið

Héldu upp á afmælið

Hraunbúar. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Lúðvík Geirsson, hér á milli skátanna í bænum.
Hraunbúar. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Lúðvík Geirsson, hér á milli skátanna í bænum.

Skátafélagið Hraunbúar hélt upp á 80 ára afmæli sitt með veglegri afmælisveislu á laugardag. Veislan var haldin í Hraunbyrgi í Hafnarfirði og u.þ.b. 150 manns komu í afmælið.

Ásgeir Ólafsson félagsforingi segir veisluna hafa verið skemmtilega og gestirnir ánægðir. "Við reynum að halda reglulega upp á afmæli félagsins og gerum okkur glaðan dag við hvert tækifæri," segir hann. Í tilefni afmælisins var sögu félagsins síðustu 80 árin gerð skil með myndasýningu og verður hún opin eitthvað fram eftir viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×