Viðskipti innlent

Vísitalan aldrei verið hærri

Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands sló enn eitt metið í gær. Vísitalan endaði í 4.753 stigum, en fyrra met vísitölunnar var 4.748 stig. Vísitalan er samsett úr gengi fimmtán stærstu og veltumestu hlutafélaganna í Kauphöllinni.

Vísitalan hefur hækkað um 41,48 prósent frá áramótum. Það stefnir því í þriðja árið í röð að óbreyttu þar sem vísitalan hækkar yfir fjörutíu prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×