Sport

Langar að berjast aftur við Lewis

NordicPhotos/GettyImages

Þungaviktarhnefaleikarinn Vitali Klitschko, sem nýlega lagði hanskana á hilluna, segir að sér þætti freistandi að snúa aftur í hringinn ef hann fengi tækifæri til að berjast við gamla keppinaut sinn Lennox Lewis.

Klitschko lagði hanskana á hilluna á dögunum vegna meiðsla, en segir að aðeins einn hlutur fengi hann til að snúa aftur. "Ég sný aðeins aftur ef Lennox Lewis snýr aftur til að mæta mér í hringnum," sagði hann. "Lennox er eini andstæðingurinn er einni keppinautur minn sem hefur skipt mig virkilegu máli," sagði sá úkraínski, en Lewis lagði hanskana sjálfur á hilluna eftir að hafa sigrað Klitschko í júní árið 2003.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×