Innlent

Bakvakt hjá héraðsdómstólunum

Lágmarksstarfsemi er hjá dómstólum landsins vegna árshátíðar Dómstólaráðs sem haldin er í Kaupmannahöfn núna um helgina. Bakvakt mun þó vera hjá héraðsdómstólunum öllum og einhver starfsemi, enda áttu ekki allir heimangengt á fagnaðinn. Því geta dómstólarnir nú sem endranær brugðist við mögulegum gæsluvarðshaldsbeiðnum og öðrum málum sem ekki þola bið. Starfsmenn héraðsdómstólanna sem komust á árshátíðina héldu af landi brott í gær, en verða að sögn mættir aftur til starfa sinna á mánudaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×