Innlent

KB banki ætlar að stofna banka í Noregi

KB banki ætlar að stofna banka í Noregi undir eigin nafni í náinni framtíð, að því er Hreiðar Már Sigurðsson segir í viðtali við Aftenposten. Hann segir það vænlegri kost en að kaupa einhvern norskan banka til að auka umsvið KB banka í Noregi, því vænleg kauptækifæri liggi ekki fyrir. Stofnun bankans í Noregi verði liður í þeirri stefnu bankans að verða stærsti fjárfestingabanki á Norðurlöndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×