Sport

Heiðari boðinn nýr samningur !

Á stuðningsmannasíðu enska 1. deildarliðsins Watford kom fram nú í kvöld að Heiðari Helgusyni hafi verið boðinn nýr og betri samningur hjá félaginu. Heiðar var á dögunum sagður sagður hafa hafnað tilboði frá félaginu sem ku hafa hljóðað upp á 4.000 pund í vikulaun en Watford hefur ekki viljað staðfesta það. Það er hins vegar ljóst að nýji þjálfari liðsins, Adrian Boothroyd, er ólmur í að halda Heiðari áfram hjá félaginu en hann hefur verið títt orðaður við lið eins og Charlton, Reading og Sheffield United. Boltinn er hjá Heiðari skv. vefnum watford.rivals.net og bíður félagið eftir svari frá honum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×