Innlent

Dæmdur fyrir fíkniefnalagabrot

Rúmlega tvítugur Reykvíkingur var í dag dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot. Við húsleit á heimili hans fundust 97 grömm af hassi, sautján grömm af maríjúana, tæp tólf grömm af amfetamíni og 68 MDMA-töflur.

Lögregla taldi að maðurinn hefði ætlað að selja hluta fíkniefnanna en því neitaði hann. Héraðsdómara þótti ósannað að maðurinn hefði ætlað að selja fíkniefni og sýknaði hann því af þeim hluta ákærunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×