Uppsagnir vegna sparnaðar 27. september 2005 00:01 Mynd/Vísir
Vestmannaeyjabær skuldar fimm milljarða króna. Bæjaryfirvöld ætla að spara 65 milljónir króna árlega með því að leggja niður stofnanir og segja upp sex til tíu starfsmönnum. Vestmannaeyingar skulda fimm milljarða króna og hafa fengið ábendingu frá eftirlitsnefnd sveitarfélaga um að taka á skuldastöðunni. Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri sagði á Talstöðinni í morgun að bærinn hefði verið rekinn með tapi í 15 ár. Stór hluti af skuldunum væri vegna lífeyrissjóðsskuldbindinga, upp á um 1,4 milljarða króna, og félagslega íbúðakerfisins, eða sem nemur 1,1 milljörðum króna. Samstæða Vestmannaeyjabæjar veltir tveimur milljörðum á ári. Bergur segir bæjaryfirvöld vilja sýna ábyrgð og taka á hlutunum. Það hafi því verið farið í uppstokkun á stjórnkerfi bæjarins, fólki fækkað í ráðum og nefndum á vegum bæjarins og þóknun þeirra lækkuð, hvort heldur bæjarfulltrúa eða annarra starfsmanna. Þá hafi verið farið kerfisbundið í gegnum allar stofnanir og ákvörðun tekin um hvaða stofnanir bærinn vilji reka áfram og hverjar verði lagðar niður. Bæjaryfirvöld telji sig nú geta sparað um 65 milljónir árlega og það eigi að gera. Aðspurður hvort segja ætti fólki upp sagði Bergur að svo gæti farið. Það yrðu þó ekki margir, milli sex og tíu manns, en hjá Vestmannaeyjabæ störfuðu 327 manns. Hlutfallið væri því ekki hátt. Bergur sagði stóran hluta að þessum aðgerðum beinast að millistjórnendum en ekki yrði farið á þá sem minnst hefðu launin. Ekki yrði hreyft við þeim sem hefðu minna en 250 þúsund krónur á mánuði.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Foreldrar hvattir á neyðarfundi skólans til að flytja börnin Innlent Segir Viðskiptablaðið og Moggann ljúga upp á hann pólitískri hlutdrægni Innlent „Hvor þeirra er líklegri til að geta skákað Kristrúnu Frostadóttur?“ Innlent Íslendingur handtekinn vegna barnaníðsefnis sem var búið til af gervigreind Innlent „Breskir hermenn geta séð um sig sjálfir“ Erlent „Rosalega íslensk umræða“ Innlent Veðrið hefur áhrif á landsfundargesti eftir allt saman Innlent „Það eru svo margir sem ekki vita hvað fatlaðir ganga í gegnum“ Innlent Væri ekki óviðeigandi að þeir hvíldu saman Innlent Trump afturkallar styrki til 5.800 þróunarverkefna Erlent Fleiri fréttir Sigu um borð og tóku yfir stjórn íslensks skips Bein útsending: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins Notuðu rafvopn til að yfirbuga ógnandi mann með hamra Veðrið hefur áhrif á landsfundargesti eftir allt saman Lítur ekki svo á að kennarar séu bundnir af kjarasamningum annarra stétta Netöryggissveitin flutt í utanríkisráðuneytið Fækkað um sex hundruð í aðgerðum MAST „Rosalega íslensk umræða“ Íslendingur handtekinn vegna barnaníðsefnis sem var búið til af gervigreind Nokkrar staðsetningar til skoðunar fyrir skóla Hjallastefnunnar Afleiðingar kjarasamnings kennara og rætt við nýjan landlækni Segir Viðskiptablaðið og Moggann ljúga upp á hann pólitískri hlutdrægni Bein útsending: Lærdómur dreginn af Covid-19 Hagræðingartillögur í yfirlestri Væri ekki óviðeigandi að þeir hvíldu saman „Hvor þeirra er líklegri til að geta skákað Kristrúnu Frostadóttur?“ Foreldrar hvattir á neyðarfundi skólans til að flytja börnin Séra Vigfús Þór Árnason látinn Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag „Það eru svo margir sem ekki vita hvað fatlaðir ganga í gegnum“ Taka tillit til „miklu, miklu meiri“ hækkana kennara Ráðherra ætlar að banna síma í skólum Segist nauðbeygður til að gagnrýna Guðrúnu á Facebook fyrst hún svari ekki póstum Keppa í dansi á heimsleikum Special Olympics Fleiri strætóferðir næsta haust og hætt við fækkun bílastæða Óttast launaskrið og aukna verðbólgu Uppsögnin komi SFV í opna skjöldu Verðbólguótti, snjallsímabann í haust og Trump-tollar Sætta sig ekki við rafræna undirritun á stefnu Fær þyngri dóm fyrir að spyrja „er þetta hann?“ og stinga svo mann Sjá meira