Erlent

NATO komi að friðarmálum

Atlantshafsbandalagið á að koma að friðarmálum í deilu Ísraelsmanna og Palestínumanna að sögn Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóra bandalagsins. „Við eigum ekki að veigra okkur við stíga fram og bjóða aðstoð okkar til að koma á friðarsamkomulagi í Miðausturlöndum,“ sagði Scheffer á ráðstefnu í Þýskalandi í dag. Hann útilokaði ekki að Sameinuðu þjóðirnar gætu einnig þurft að koma að málinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×