Erlent

Fjórtán lík finnast

Írakskir lögreglumenn fundu í morgun fjórtán lík í norðurhluta Bagdad og hafði fólkið allt verið skotið til bana. Greinilegt var að um aftöku var að ræða. Ekki hefur verið greint frá því hver fórnarlömbin voru en algengt er að uppreisnar- og hryðjuverkamenn taki heili skara fólks af lífi, tengist það hersetuliðinu eða stjórnvöldum. Oftast eru það lögreglumenn eða félagar í öryggissveitum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×