Sport

Davíð Viðarsson áfram hjá FH

FH-ingar keyptu í morgun Davíð Viðarsson frá norska liðinu Lilleström.  Davíð var samningsbundinn Lilleström en var í láni hjá FH.  Viðar Halldórsson staðfesti þetta í samtali við íþróttadeild nú fyrir hádegi.  Davíð vildi halda áfram að spila með FH en norska liðið vildi halda honum.  Eftir samningaviðræður um helgina náðist loks samkomulag í morgun og Davíð heldur því áfram að spila með FH.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×