Enginn ágreiningur milli ASÍ og SA um lög fyrir starfsmannaleigur 9. nóvember 2005 09:30 MYND/Valgarður
Grétar Þorsteinsson , forseti ASÍ , segir það miður að nefnd um starfsemi starfsmannaleiga hafi starfað í rúmt ár án niðurstöðu. Hann hafnar því þó að ágreiningur sé milli ASÍ og Samtaka Atvinnulífs í nefndinni. Félagsmálaráðherra hefur lofað lögum fyrir jól. Árni Magnússon félagsmálaráðherra lýsti því yfir í síðustu viku að lög um starfsemi starfsmannaleiga væru væntanleg fyrir jól. Fyrir um einu og hálfu ári skipaði Árni hins vegar nefnd í kjölfar umræðna á Alþingi um aðbúnað og kjör erlendra verkamanna á Kárahnjúkum sem skoða átti mögulega lagasetningu. Í henni sitja, auk fulltrúa ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins, fulltrúi félagsmálaráðherra. Sú nefnd hefur enn ekki skilað niðurstöðu né hafa forystumenn Alþýðusambandsins séð tillögur hennar. Grétar Þorsteinsson formaður ASÍ kveðst ekki geta skýrt hvers vegna nefndin hafi ekki skilað niðurstöðu fyrr enda hafi vandræði tengd starfsmannaleigum tekið drjúgan tíma hjá ASÍ og aðildarfélaga nú í nokkur ár. Hann segir vinnuna hafa tekið alltof langan tíma og hann viti ekki hvernig standi á því. Hann kannist ekki við að deilur séu á milli ASÍ og SA um mikilvægi þess að lög verði sett um starfsemi starfsmannaleigna. Aðspurður hvort það sé þá fulltrúi ráðuneytisins sem hafi dregið lappirnar segir Grétar að hann ætli ekkert að fullyrða um það. Ráðuneytið verði að svara því.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Innlent Fleiri fréttir Vara ráðherra við hörmungum ef lykilhringrás í hafinu stöðvast „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Sjá meira