Sport

Viera fundar með Wenger í vikunni

Framtíð miðjumannsins franska, Patrick Viera hjá Arsenal, ræðst væntanlega í þessari viku, því hann hefur óskað eftir fundi með Arsene Wenger knattspyrnustjóra sínum til að ræða málin. Viera hefur verið orðaður við stórlið Real Madrid og Juventus og þó allir neiti að viðræður hafi farið fram, er ljóst að mörgum spurningum er ósvarað um framtíð fyrirliðans. Ítalskir fjölmiðlar hafa greint frá því að útsendarar Arsenal og Juventus hafi hist og rætt hugsanleg viðskipti sem fælu í sér að Viera færi til Juve og Arsenal fengi í staðinn Jonathan Zebina og á bilinu fimm til tíu milljónir punda á milli. Ekkert af þessu hefur þó fengist staðfest af félögunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×