Innlent

Tveir harðir árekstrar í borginni í gær

MYND/Róbert

Harður árekstur varð á mótum Kleppsvegar og Súðarvogar í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöld. Engin slys urður á fólki en ung stúlka í öðrum bílnum var flutt á sjúkrahús í losti. Þá varð harður árekstur í Kópavogi á Hafnarfjarðarvegi til móts við Kársnesbraut í gærkvöld. Ökumaður annarra bifreiðarinnar fór á slysadeild en meiðsli hans voru minni háttar. Bílarnir voru hins vegar báðir fjarlægðir með kranabíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×