Innlent

Skurðstofur opnar í sumar

Tryggt verður að ekki þurfi að loka skurðstofum Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum í sumar. Þetta kom fram hjá Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra á Alþingi í gærmorgun. Lagði ráðherra áherslu á að íbúum í Vestmannaeyjum yrði áfram tryggð öflug og örugg heilbrigðisþjónusta. Fram kom í máli ráðherra að heilbrigðisstofnunin hafi verið rekin með halla nokkur undanfarin ár, um 12,5 milljónir árið 2003 og að halli ársins 2004 stefndi í að verða um 33,4 milljónir króna. Einnig kom fram hjá ráðherra að uppsafnaður halli hafi verið um 95 milljónir króna í árslok 2004 . Fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja á árinu 2005 eru um 485 m.kr. Á stofnuninni eru 19 sjúkrarými og 16 hjúkrunarrými. Sagði ráðherra að borið saman við aðrar heilbrigðisstofnanir sýnist honum fé ekki naumt skammtað til stofnunarinnar. Ráðherra lagði áherslu á að hagræðingu mætti ná í rekstri hennar og sagði í því sambandi afar brýnt að samnýta vaktir sjúkra- og heilsugæslusviðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×