Gervigrasið að reynast vel 3. október 2005 00:01
Átta af hverjum tíu leikmönnum í norsku úrvalsdeildinni vilja ekki að deildakeppnin fari fram á gervigrasvöllum. Þá sýnir sænsk rannsókn að gervigrasvellir draga úr áhuga almennings að fara á völlinn en meiðslahætta leikmanna er hins vegar minni á gervigrasi. Stjarnan í Garðabæ lagði þriðju kynslóð gervigrass á aðalvöll sinn á síðasta ári og þjálfari liðsins segir reynsluna af síðasta sumri mjög góða. "Ég get alveg viðurkennt að ég var svolítið efins í fyrstu. En eftir reynsluna þetta eina ár verð að segja að hún er frábær," segir Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari Stjörnunnar í Garðabæ, sem lék heimaleikina í 2. deildinni í sumar á gervigrasvelli félagsins. Stjarnan tryggði sér sæti í 1. deild. Mikil umræða hefur verið í Noregi og Svíþjóð undanfarin misseri hvort gervigras sé heppilegt á aðalvelli liða í úrvalsdeild en þrjú stórlið í Svíþjóð hafa farið þá leið. Um er að ræða Idrottsparken í Sundsvall, Strömvallen í Gefle og nú síðast Borås Arena. Í norsku úrvalsdeildinni er það Aalesund sem spilar á gervigrasi. Leikmenn eru sérstaklega gagnrýnir á gervigrasið. Norsku leikmannasamtökin gerðu skoðanakönnunum á meðal 600 knattspyrnumanna, þar af 50 kvenna, um afstöðu þeirra til þess að spila á gervigrasi. Alls skiluðu 359 inn svörum og niðurstaðan var að áttatíu prósent leikmanna segja nei við gervigrasi í deildarkeppni. Þá segja 75 prósent leikmanna að meiðslahættan sé meiri á gervigrasi. Það er hins vegar röng ályktun samkvæmt því sem rannsókn nefndar á vegum Knattspyrnusambands Evrópu bendir til. Svíinn Jan Ekstrand, sem fer fyrir nefndinni, segir þvert á móti að meiðslahætta á nýjustu gervigrasvöllunum sé minni en á venjulegu grasi. "Gervigrasvellir hafa þróast mikið undanfarin ár. Þetta er gömul klisja með meiðslahættuna," segir Ekstrand við sænska blaðið GP.Jörundur Áki segir að Stjarnan hafi að mestu leyti sloppið við meiðsli undanfarið ár, sem sé athyglisvert. "Þau meiðsli sem við lentum í getum við ekki rakið til gervigrassins heldur var þetta hefðbundið boltahnjask. Við æfðum líka á venjulegu grasi fyrir útileikina og nýttum gervigrasið þegar vellirnir voru mjög blautir í sumar. Reynsla okkar af gervigrasinu var mjög góð í alla staði." Í umræðunni um hvort lengja eigi íslenska keppnistímabilið og fjölga liðum í Landsbankadeild hafa sumir sett spurningarmerki við notkun gervigrass. Jörundur Áki segir að enginn þurfi að óttast gervigrasið í dag því það komist eins nálægt venjulegu grasi eins og hægt sé."Að mínu mati verða gervigrasvellir að vera til staðar ef fjölga á í Landsbankadeildinni og lengja keppnistímabilið. Hjá Stjörnunni er æft við sömu aðstæður allt árið um kring. Gervigrasið er upphitað og ég get ekki fundið neina galla við þetta. Við bleytum grasið fyrir leiki til þess að fá enn eðlilegri tilfinningu fyrir þessu," segir Jörundur Áki.Í Svíþjóð skrifuðu allir leikmenn Gautaborgarliðanna þriggja, IFK Gautaborg, Örgryte og Gais, nýlega undir mótmælaskjal þegar sú hugmynd kom upp að setja gervigras á nýjan leikvang sem verið er að byggja í borginni. Jörundur Áki segir að langflestir leikmenn Stjörnunnar séu sáttir við gervigrasið. Það séu helst elstu leikmennirnir í Stjörnuliðinu sem hafi eitthvað kvartað enda sé erfitt að kenna gömlum hundum að sitja. Niðurstaða rannsóknar við íþróttaháskólann í Gautaborg, sem byggir á viðtölum við leikmenn, sýnir að knattspyrnan á gervigrasvelli sé að þeirra mati nokkuð frábrugðin þeirri sem spilast á venjulegu grasi. Meira sé um þéttan varnarleik og langspyrnur á gervigrasi. Íslenskir þjálfarar sem Fréttablaðið ræddi við eru ekki sammála þessu og benda á að yfirleitt sé miklu meira skorað í leikjum á gervigrasi.Í nóvember sl. ákvað Evrópska knattspyrnusambandið að leyfa gervigras í riðlakeppni HM og Meistaradeild Evrópu en ekki í úrslitum HM og EM. KSÍ skoðar þann möguleika að sauma gervigras í grasið á Laugardalsvelli til þess að styrkja slitfleti og það er sú þróun sem margir horfa til.
Íslenski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira