Sport

Óli með áskrift að heimsliðinu

Ólafur Stefánsson, landsliðsmaður í handknattleik sem leikur með Ciudad Real á Spáni, hefur enn og aftur verið valinn í heimsliðið í handknattleik. Liðið mætir Rússum í Moskvu 28. desember. Þar hyggjast Rússar kveðja þrjá af sínum snjöllustu handknattleiksmönnum í gegnum tíðina: markvörðinn snjalla Andrei Lavrov, Alexsander Tuchkin og Vaseile Kudinov.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×