Fischer þjáist af áfengisskorti

Heilsa Bobby Fischers er sögð slæm þar sem hann situr í fangelsi útlendingaeftirlitsins í Japan. Nú segja japanskir fjölmiðlar að sjálfur telji hann eina megin ástæðuna þá að hann fái ekkert áfengt að drekka í haldi. Í viðtali við filippseyska útvarpsstöð sagði Fischer að hann teldi hóflega áfengisdrykkju góða fyrir heilsuna og að hann væri sannfærður um að skortur á víni væri ein ástæða þess hversu illa honum liði. Að sama skapi taldi hann undarlegt að menn fengju tollfrjálsar sígarettur í haldi útlendingaeftirlitsins því fyrir vikið reyktu allir eins og strompar.