Erlent

Áhlaup bandaríkjahers heldur áfram

Áhlaup Bandaríkjahers í Anbar-héraði í Írak heldur áfram en þar hafa uppreisnarmenn komið sér upp bækisstöðvum. Hermenn hundelta uppreisnarmenn eftir ánni Efrat en þeirra hefur þó nánast ekkert orðið vart. Hermenn sem héldu inn í bæinn Haditha mættu því sem næst engri mótspyrnu en talið var að fjöldi uppreisnarmanna, sem áður hélt til í Fallujah, hefði flúið til borgarinnar. Það sem af er degi hefur þó enginn háttsettur náðst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×