Matur

Ertu með í mjólkurferð?

Kanadísk mjólk

1 bolli mjólk eða léttmjólk

1/2 bolli litlir sykurpúðar

1/2 teskeið vanilludropar

1 matskeið hlynsíróp



Hitið mjólkina í litlum potti. Setjið sykurpúða, vanilludropa og síróp í hitabrúsa og hellið heitri mjólkinni varlega yfir. Setjið lokið á og hristið brúsann í svona 20 sekúndur eða þar til blandan er farin að freyða og sykurpúðarnir eru bráðnaðir. Opnið varlega, hellið í krús og berið fram.

Indverskt mjólkurte

4 bollar vatn

8 negulnaglar

4 heilar kardimommur

1 teskeið fenníkufræ

1 kanilstöng

5 cm sneið af ferskum engifer

3 pokar af Darjeeling-te eða 3 matskeiðar af Darjeeling-telaufum

1 bolli léttmjólk eða fjörmjólk

1/4 bolli sykur

Blandið saman kryddi og vatni í meðalstóran pott og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann, setjið lokið á og látið malla í tíu mínútur. Bætið tepokunum út í og takið pottinn af hellunni. Lokið aftur og mallið í hálftíma. Síið svo vökvann ofan í annan pott og bætið sykri og mjólk í. Sjóðið aftur þar til sykurinn leysist alveg upp. Hellið í fjórar könnur eða há kaffiglös og skreytið með kanilstöngum og appelsínuberki.

Hnetuhristingur

1 bolli kekkjalaust hnetusmjör

1/4 bolli súkkulaðisíróp

1 1/4 bolli mjólk

12 ísmolar

Blandið saman hnetusmjöri, súkkulaðisírópi, mjólk og ísmolum í matvinnsluvél. Hellið í há glös og skreytið með súkkulaðispænum.

Hollur morgunhristingur

3 bollar undanrenna

1/4 bolli All Bran

1/4 teskeið kanill

1/2 teskeið vanilludropar

1 meðalstórt epli í sneiðum

Frystið 2 1/2 bolla af undanrennu í ísmolabakka yfir nótt. Setjið All Bran, kanil, vanilludropa og epli í matvinnsluvél og blandið saman við 1/2 bolla af undanrennu. Blandið saman í 20 sekúndur. Bætið frosnu undanrennumolunum einum af öðrum út í hristinginn þar til ákjósanlegri áferð er náð, en hún fer eftir smekk hvers og eins. Geymið afganginn frosinn til seinni nota. Í staðinn fyrir epli má nota hvaða ávexti sem er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×