Lífið

„Fólkið hefur gleymst og þetta er ekki manneskju­legt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Páll og Hilmar segja báðir að við séum á rangri leið í skipulagi Reykjavíkur.
Páll og Hilmar segja báðir að við séum á rangri leið í skipulagi Reykjavíkur.

Arkitekt segir að verið sé að byggja glænýju hverfi borgarinnar fyrir verktakana og fjáreigendurna en ekki íbúana.

Byggt er svo þétt að ekki er gert ráð fyrir að íbúar fái fjölskyldu eða vini í heimsókn. Í glænýjum þéttum hverfum borgarinnar eru einungis 70% íbúða með bílastæði og oft hreinlega engin gestastæði þannig að ekki er hægt að fá gesti í heimsókn.

Þétting byggðar hjá borginni gengur meðal annars út á að fækka bílum í borginni þannig að fleiri ferðist með strætisvögnum og fari hjólandi og svo með Borgarlínunni þegar og ef hún kemur. Fagaðilar eins og arkitektar og umhverfissálfræðingar hafa gagnrýnt aðferðafræði borgarinnar og kalla eftir breyttu viðhorfi til skipulags og hönnunar í borginni. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og kynnti sér málin í síðustu viku.

„Við sáum það að borgin er að breytast og það er verið að byggja mikið af mjög stórum húsum sem hafa þau einkenni að vera hönnuð og byggð fyrir fjárfesta og ekki fyrir markaðinn. En fólkið hefur gleymst og þetta er ekki manneskjulegt,“ segir Hilmar Þór Björnsson arkitekt og heldur áfram.

„Hvatinn er því bara að byggja mikið og þétt.“

„Við sjáum það núna þegar þessi verkefni fara af stað, eru byggð og verða að raunveruleika að það er kannski full ástæða til að fara aðeins að staldra við og sjá hvort við séum í raun og veru á þeirri leið sem við viljum. Hvort við séum að skapa það umhverfi og aðstæður sem við viljum vera að skapa. Þetta er svona það sem maður kallar spennitreyjuskipulag,“ segir Páll Jakob Líndal sem er doktor í umhverfissálfræði.

„Sveigjanleikinn í umhverfismótuninni er mjög lítill. Þetta er svo frábrugðið því umhverfi sem við þróuðumst í og okkar skynbragð og líkami er hannaður til að vera í,“ segir Páll.

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.