Sport

Hannes til Stoke City

Hannes Þ. Sigurðusson, framherji ungmennalandsliðsins í knattspyrnu, er genginn til liðs við Stoke City frá Viking í Noregi. Hannes skrifaði undir þriggja ára samning við Stoke en ekki hefur kaupverðið verið gefið upp. Hannes er 22 ára gamall og lék með Fjölni og FH í yngri flokkum áður en hann gekk til liðs við Viking í Noregi. Auk Hannesar fékk Stoke City þá Junior,sem er Brasilíumaður og Martin Kolar sem er Tékki að láni frá Anderlecht í Belgíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×