Sport

Sigurganga Heat á enda

Ray Allen og félagar í Seattle Supersonics bundu enda á 14 leikja sigurgöngu Miami Heat í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt, 98-96. Allen fór fyrir sínum mönnum og skoraði 35 stig. Leikurinn var í járnum síðustu mínúturnar og náði Heat að jafna leikinn fjórum sinnum á síðustu fimm mínútum leiksins en Sonics náði alltaf að svara og knúði fram sigur. Dwyane Wade var stigahæstur Heat með 28 stig. "Þetta var góður sigur hjá okkur, sérstaklega í ljósi sigurgöngu Miami-liðsins," sagði Nate McMillan, þjálfari Sonics, sem er með næstbesta árangur allra liða í NBA á eftir Phoenix Suns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×