Erlent

Aðstoðarlögreglustjóri myrtur

Aðstoðarmaður lögreglustjórans í Bagdad var myrtur fyrir utan heimili sitt í morgun. Skæruliðar sátu fyrir manninum og syni hans og skutu þá báða til bana. Þá létust að minnsta kosti þrír Írakar þegar bílsprengja sprakk utan við lögreglustöð í suðurhluta Bagdad í morgun. Nokkrir slösuðust í árásinni og óttast er að tala látinna kunni að hækka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×