Erlent

Sakfelldur fyrir pyntingar í Írak

Herlögreglumaðurinn Charles Graner var sakfelldur við herdómstól í Texas í gær um að hafa misþyrmt föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Hann er fyrsti bandaríski hermaðurinn sem fundinn er sekur um að hafa misþyrmt föngum í Írak en hann mun hafa barið þá og neytt þá til að leggjast nakta ofan á hvern annan. Graner á yfir höfði sér 17 ára fangelsi en refsing hans verður ákveðin síðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×