Innlent

Eðlilegt að spár breytist

"Veðurspáin fyrir illviðrið í Skandinavíu stóðst ótrúlega vel og allar viðvaranir í sambandi við það voru góðar. Mér finnst það ekki frétt þó að þriggja daga spáin hafi ekki skilað sér," segir Magnús Jónsson veðurstofustjóri og segir spár oft breytast ótrúlega mikið frá degi til dags. Ef við færum að skoða það hér á Íslandi hversu stór hluti af þriggja daga veðurspám er vitlaus fengjum við háa prósentu," fullyrðir hann en fagnar því að gerðar skuli rannsóknir sem miði að því að bæta spárnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×