Sport

35 stig frá James dugðu ekki til

Ray Allen hafði betur í einvíginu gegn LeBron James þegar lið þeirra, Seattle Supersonics og Cleveland Cavaliers, áttust við í fyrrinótt í NBA-körfuboltanum. Sonics vann leikinn, 105-97. James skoraði 35 stig, tók 5 fráköst og gaf 11 stoðsendingar en Allen var liði sínu mikilvægur á lokamínútum leiksins og leiddi það til sigurs. Hann skoraði 27 stig. "Fjórði leikhlutinn er minn tími," sagði Allen. "Hvort sem ég hitti úr skotum eða ekki þá mun ég láta að mér kveða í lokaleikhlutanum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×