Innlent

Hákon Eydal fellur frá kröfunni

Hákon Eydal, sem hefur viðurkennt að hafa banað barnsmóður sinni Sri Rhamawati, hefur fallið frá kröfu um nýja geðrannsókn. Við þingfestingu málsins gegn honum fyrr í mánuðinum gerði hann þessa kröfu og var milliþinghald um það í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þar kom fram að Hákon hefur dregið kröfuna til baka en lét bóka athugasemdir við þá rannsókn sem gerð var á honum. Aðalmeðferð málsins verður þann 4. mars.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×