Lífið

Vala dottin út úr IDOL

Valgerður Friðriksdóttir féll í kvöld út úr úrslitakeppni Idol stjörnuleitarinnar. Annar þáttur úrslitanna var í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Vetrargarðinum í Smáralind í kvöld. Níu þátttakendur sungu lög frá diskótímabilinu. Valgerður Friðriksdóttir eða Vala söng "Cant´take my eyes of you" en frammistaða hennar var ekki það góð að dygði til áframhaldandi þátttöku að mati sjónvarpsáhorfenda, sem greiddu atkvæði um keppendur með því að hringja inn eða senda SMS. Úrslitakeppnin heldur áfram að viku liðinni. Þriðji þátturinn verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Smáralind næstkomandi föstudag, 28. janúar klukkan 20:30. Þá fellur enn einn úr keppni. Keppendur í 8 manna úrslitum eru; Brynja, Davíð Smári, Margrét Lára, Ylfa Lind, Lísa, Hildur Vala, Heiða og Helgi Þór. Örlög þeirra verða sem fyrr í höndum þjóðarinnar. IDOL-síðan





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.