Innlent

Hús rýmd

Fjögur hús voru rýmd á Bíldudal seint í gærkvöld vegna snjóflóðahættu. Lögreglan á Patreksfirði segir að húsin séu við Gilsbakkagil og gripið hafi verið til þessa af öryggisástæðum. Í gærkvöld var talið að íbúar húsanna yrðu að vera að heiman í nótt. Að sögn lögreglu dvelur fólkið hjá vinum og kunningjum. Þetta er í fimmta sinn sem lögreglan á Patreksfirði hefur þurft að rýma hús í vetur, þrisvar í bænum sjálfum, einu sinni á Tálknafirði og nú á Bíldudal.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×