Viðskipti innlent

Sækist eftir stóli hjá Straumi

MYND/E.Ól
Þorsteinn Már Baldvinsson hefur gefið kost á sér til stjórnarsetu í Straumi - Fjárfestingarbanka hf. á aðalfundi bankans þann 4. febrúar næstkomandi, en Þorsteinn Már á jafnframt sæti í stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar. Í ljósi skilyrða Fjármálaeftirlitsins um meðferð Straums - Fjárfestingarbanka á virkum eignarhlut í Íslandsbanka sem birt var í Kauphöll Íslands þann 21. janúar sl. hefur Þorsteinn ákveðið að gefa ekki kost á sér til stjórnarsetu í Tryggingamiðstöðinni á næsta aðalfundi félagsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×