Matur

Blómkál gegn krabbameini

Ömmur hafa tíðum brýnt fyrir börnum að borða allt grænmetið á diskinum. Ömmur hafa alltaf vitað að grænmeti er hollt en nú lítur út fyrir að vísindamenn séu að komast að hinu sama. Nýjar rannsóknir benda nefnilega til þess að efni sem finnast í hvítkáli, spergilkáli, rósakáli og blómkáli séu til þess fallin að koma í veg fyrir krabbamein.

Til þess að skoða þetta betur ætla vísindamenn í Cardiff í Wales að gera víðtæka rannsókn á þessu fyrirbæri, einkum með tilliti til þess hvort efni sem þeir kalla DIM geti snúið við krabbameini á frumstigi í leghálsi og eða hvort efnið geti komið í veg fyrir að krabbameinið þróist enn frekar. DIM er efni sem myndast í líkamanum við meltingu grænmetis á borð við hvítkál og spergilkál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.