Erlent

Sharon og Abbas til Egyptalands?

Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hefur boðið Ariel Sharon, forsætisráðherra Íraels, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, til fundar í Egyptalandi í næstu viku að sögn forsætisráðuneytinu í Ísrael. Sharon hefur þegar þáð boðið en ekki hafa borist fregnir af viðbrögðum palestínskra yfirvalda. Undanfarið hafa verið ýmis teikn verið á lofti um batnandi friðarhorfur í Miðausturlöndum í kjölfar þess að Abbas var kjörinn forseti Palestínu í síðasta mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×