Erlent

Vantrauststillaga á ríkisstjórnina

Þingmenn stjórnarandstöðunnar í Búlgaríu hafa lýst yfir vantrausti á ríkisstjórn landsins, nú þegar fimm mánuðir eru fram að þingkosningum. Ekki liggur ljóst fyrir að svo stöddu hvað nákvæmlega varð til þess að vantrauststillagan var lögð fram. Stjórnarflokkarnir í Búlgaríu eru í minnihluta á þinginu og því getur vel farið svo að stjórnin verði felld í atkvæðagreiðslu um tillöguna sem að líkindum mun fara fram í næstu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×