Sport

Jón Arnór í 16 manna Evrópuúrval

Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður með Dynamo St. Pétursborg, er einn af 16 bakvörðum sem eru tilnefndir í Evrópuúrvalið fyrir stjörnuleik Körfuknattleikssambands Evrópu, sem fram fer 14. apríl á Kýpur. Kosning í Evrópuúrvalið fer fram á heimasíðu Körfuknattleikssambands Evrópu en hægt að er að fara inn á hana í gegnum heimasíðu Körfuknattleikssambands Íslands, kki.is. Þjálfarar og netverjar sjá um valið í sameiningu. Evrópuúrvalið mætir heimsliði í stjörnuleiknum, þ.e. leikmönnum frá öðrum heimshlutum. Jón Arnór hefur staðið sig feikilega vel með Dynamo St. Pétursborg í vetur og er liðið taplaust í Evrópukeppninni. Liðið sigraði gríska liðið Iraklis Þessaloniki 100-82 í gærkvöld og skoraði Jón Arnór 9 stig í leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×