Innlent

Greiði SÍF 1,5 milljón

Vélsmiðja Orms og Víglundar í Hafnarfirði var í dag dæmd til að greiða SÍF alls rúmlega 1,5 milljón króna í bætur vegna málningarúða sem í tvígang barst frá vélsmiðjunni og lagðist yfir bifreiðar SÍF og starfsmanna fyrirtækisins. Málningablettir og -doppur komu á tugi bíla á bílastæði SÍF og þótti sannað, meðal annars vegna vindáttar, að þessi málningarúði hafi komið frá Drafnarslipp þar sem Vélsmiðjan var að störfum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×