Sport

Munnlegt samkomulag við Shaw

Körfuknattleikslið Hauka í intersportdeildinni hafa gengið frá munnlegu samkomulagi um að Bandaríkjamaðurinn Demetric Shaw leiki með liðinu það sem eftir lifir tímabils. Shaw spilaði sinn fyrsta leik með liðinu gegn ÍR á fimmtudagskvöldið og átti frábæran leik. Hann skoraði 29 stig, tók 13 fráköst og gaf 5 stoðsendingar og leiddi gjörbreytt lið Hauka til stórsigurs. Sverrir Hjörleifsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að aðeins ætti eftir að ganga frá formsatriðum samningsins við Shaw enda væri gríðarlega ánægja með hann innan raða Haukanna. "Hann er frábær leikmaður og mjög jákvæður karakter sem gerir aðra leikmenn í kringum sig betri," sagði Sverrir en Shaw er bróðir Ebony Shaw, sem spilar með kvennaliði Hauka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×